 Rúnar og félagar þurfa að ná upp sömu vörn og fyrir áramót
| | 17. febrúar 2007 - SÁ skrifar
Rúnar: Lagt upp með að fá meira tempó í okkar leikÁ morgun fer fram stórleikur í KA-Heimilinu er Akureyri mætir Stjörnunni. Þetta verður væntanlega hörkuleikur en Stjarnan er með stjörnum prýtt lið. Heimasíðan tók viðtal við Rúnar Sigtryggsson þjálfara Akureyrar og spurðum hann út í morgundaginn meðal annars.
.SÁ: Rúnar, það gekk ekki eftir um seinustu helgi gegn Fylki... Rúnar: Nei, við spiluðum bara lélegan handbolta heild yfir og það eru hörmung að horfa á þetta aftur. Við þurfum að finna okkar fyrra form sem við vorum komnir í. Við vorum komnir á fína keyrslu fyrir jól og spilið var farið að ganga mun betur. Það var kominn hraði í spilið en í seinasta leik þá tökum við allan hraða úr okkar spili og þess vegna lýtur þetta illa út.
SÁ: Heldur þú að þið séuð búnir að laga það núna fyrir leikinn á móti Stjörnunni á morgun? Rúnar: Það hefur verið lagt upp með það alla veganna að fá betra tempó í okkar leik. Við erum miklu hættulegri þegar við erum að spila boltann á hreyfingu í staðinn fyrir að gera þetta úr kyrrstöðu eins og í seinasta leik.
SÁ: Hvernig finnst þér liðið vera spennt fyrir morgundaginn? Rúnar: Það er ágætlega stemmt. Þetta er svona eins og nýtt tímabil hálfpartinn núna. Menn eru að finna rhythmann í þessu aftur og það verður bara að koma í ljós á morgun hvernig það verður.
SÁ: Fannst þér vanta eitthvað upp á það á móti Fylki að menn væru tilbúnir að berjast 100%? Rúnar: Já, það vantaði alveg greinilega. Það sem var munurinn á liðunum fyrir utan allt þetta handboltalega var það að Fylkismenn vildu meira vinna leikinn. Það var það sem gerði útslagið og þú sérð það t.d. á fráköstum og því hvernig menn voru að sækja á markið.
SÁ: Á morgun er fyrsti heimaleikurinn á þessu ári og svo eru tveir útileikir á eftir. Akureyri hreinlega verður að vinna! Rúnar: Við verðum að vinna því annars erum við farnir að gera okkur þetta alltof erfitt. Við fáum mjög gott lið hérna. Við fáum stærstu nöfnin í íslenskum handbolta í sama liðinu, Roland, Tite og Patrek. Þetta er bara mjög verðugt verkefni og við þurfum á stuðningi að halda á morgun.
|