Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hreiðar og félagar spila fyrsta leikinn á morgun

5. apríl 2007 - SÁ skrifar 

Hreiðar Levý og félagar farnir út

Íslenska landsliðið með okkar mann Hreiðar Levý Guðmundsson innanborðs hélt erlendis í gær á æfingamót í Frakklandi en þar verða ekki minni landslið en frá Frakklandi, Póllandi og Túnis. Mótið er því gríðarlega sterkt en Pólverjar fóru eins og menn muna í úrslitin á stærsta Heimsmeistaramóti sem haldið hefur verið núna í janúar í Þýskalandi.

Leikir Íslands í keppninni verða allir sýndir beint á Rúv sem er afar gott framtak hjá þeim og er fólk eindregið hvatt til að fylgjast með okkar mönnum

Föstudaginn, 6. apríl: Ísland - Pólland klukkan 16:30
Laugardaginn, 7. apríl: Ísland - Frakkland klukkan 14:00
Sunnudaginn, 8. apríl: Ísland - Túnis klukkan 11:00
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson