Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Nýtt leikjafyrirkomulag á hverju ári!

29. ágúst 2007 - Akureyri Handboltafélag skrifar

Leikjafyrirkomulagið í vetur

Eins og margir hafa tekið eftir hefur mönnum gengið illa að koma sér saman um hvaða leikjafyrirkomulag hentar best í meistaraflokki karla á Íslandi. Hér áður fyrr fór fram úrslitakeppni að lokinni deildakeppni líkt og þekkist í körfunni. Síðasta vetur var svo nýtt fyrirkomulag notað og á keppnistímabilinu sem senn fer í hönd verður notast við enn eitt fyrirkomulagið. Það er því ástæða til að fara yfir það fyrirkomulag sem leikið verður eftir í vetur.

Leikið verður í tveimur deildum. Í efri deild leika Akureyri handboltafélag, Fram, ÍBV, Afturelding, Haukar, Valur, Stjarnan og HK, alls átta lið. Leikin verður fjórföld umferð, alls 28 leikir á lið og það lið sem hlýtur flest stig að loknum þessum 28 umferðum verður Íslandsmeistari. Tvö neðstu liðin í deildinni falla hins vegar niður í neðri deildina og tvö efstu liðin í neðri deildinni taka sæti þeirra.

Einnig er leikið í Deildarbikarnum og fer sú keppni fram á milli jóla og nýárs. Þar er fyrirkomulagið þannig að liðið sem er í 1.sæti í deildinni leikur gegn því liði sem er í 4. sæti og 2. sæti gegn 3. sæti. Miðað er við stöðu liðanna eftir síðustu umferð fyrir jól. Sigurvegarar úr þessum leikjum leika svo til úrslita og sigurvegarinn í þeim leik er Deildarbikarmeistari

Deildarbikarmeistari öðlast rétt til þátttöku í Evrópukeppni félagsliða (EHF cup), en verði það lið einnig Íslandsmeistari fær lið nr. 2 þátttökurétt í Evrópukeppni félagsliða, en öðlist það lið þátttökurétt í Evrópukeppni Bikarmeistara (Cupwinners cup) fær lið nr. 3 þátttökurétt í Evrópukeppni félagsliða.

Íslandsmeistari öðlast rétt til þátttöku í Meistarakeppni Evrópu (Champions league). Liðið í 2.sæti í deildinni skal öðlast rétt til þátttöku í Áskorendakeppni Evrópu (Challenge cup) ef það lið er einnig með þátttökurétt í Evrópukeppni félagsliða (EHF cup) eða Evrópukeppni Bikarmeistara (Cupwinners cup), skal það lið sem efst var í deildarkeppninni án þess að vinna þátttökurétt í Evrópukeppni, öðlast þátttökurétt í Áskorendakeppni Evrópu.

Heimild: Heimasíða HSÍ

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson