 Fyrstu leikir tímabilsins
| | 31. ágúst 2007 - Akureyri Handboltafélag skrifarLið Akureyrar á Reykjavík OpenÍ dag, föstudag, hefur Akureyri Handboltafélag þátttöku á Reykjavík Open mótinu með tveim leikjum. Klukkan 17:00 leikur liðið við HK1 og klukkan 20:00 við FH. Á laugardag leika okkar menn við ÍR2 klukkan 9:00 og síðan við Hauka(u) klukkan 12:00. Allir þessir leikir fara fram í Austurbergi.
Seinna um daginn verður leikið um verðlaunasætin. Mótið er leikið í tveimur riðlum og hefur Stjarnan þegar sigrað hinn riðilinn og Fram lenti þar í öðru sæti en liðin urðu jöfn að stigum en Stjarnan vann á betri markatölu. |