 Hvað gera Maggi og félagar um helgina?
| | 5. september 2007 - Akureyri Handboltafélag skrifarKaffi Akureyrarmótið um helginaÁrlegt æfingamót á Akureyri fer fram á föstudaginn og laugardaginn. Það hefur verið nefnt Sjallamót um árabil en nýr samstarfsaðili er veitingastaðurinn Kaffi Akureyri og er mótið nefnt eftir honum að þessu sinni.
Tvö aðkomulið mæta til leiks í karlaflokki, FH og ÍR, auk tveggja liða frá Akureyri handboltafélagi eins og í fyrra. Einungis eitt kvennalið mætir hins vegar að sunnan að þessu sinni og leikur við Akureyringa, önnur hrukku úr skaftinu svo seint að ekki var hægt að bregðast við því. Akureyri og FH mætast því þrívegis um helgina í kvennaflokki.
Dagskrá mótsins er sem hér segir:
Föstudagur 7. september:
| 17:00-18:00 | kk | Akureyri 1 - Akureyri2 | | 18:30-20:00 | kk | ÍR - FH | | 20:00-21:30 | kvk | Akureyri - FH |
Laugardagur 8. september:
| 09:00-10:30 | kk | Akureyri 2 - ÍR | | 10:30-12:00 | kk | Akureyri1 - FH | | 12:00-13:00 | kvk | Akureyri - FH (2x20 mín) | | 13:00-14:30 | kk | Akureyri 2 - FH | | 14:30-16:00 | kk | Akureyri 1- ÍR | | 16:00-17:00 | kvk | Akureyri - FH (2x20 mín) |
Allir leikirnir verða í KA-heimilinu. |