Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Tímabilið er að byrja hjá stelpunum

12. september 2007 - BHB skrifar

Valur - Akureyri (upphitun)

Heimasíðan náði tali af Jonna Magg þjálfara kvennaliðs Akureyrar og spurði hann nokkurra spurninga í tilefni þess að fyrsti leikur tímabilsins er á morgun. Hann er spilaður í nýju og glæsilegu íþróttahúsi Vals klukkan 20:00. Valsstúlkum var núna fyrir helgi spáð þriðja sæti í deildinni af forráðamönnum liðanna.

Hvernig leggst leikurinn í þig?
Leikurinn leggst bara nokkuð vel í mig. Gaman að fara að spila í nýrri og glæsilegri Vodafonehöll. Mikil eftirvænting eftir langar og strangar æfingar.

Hvernig er staðan á hópnum?
Staðan á hópnum er bara nokkuð góð, búnar að æfa vel, en vantar þá ennþá nokkuð í hópinn.

Eru allar stelpurnar með?
Nokkrir leikmenn eru í útskriftarferð með MA og verða ekki með okkur á morgun. Við ætlum að njóta þess að spila á morgun, og vonandi tekst okkur að ná hagstæðum úrslitum.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson