 Fundurinn er á Kaffi Akureyri
| | 14. september 2007 - Akureyri Handboltafélag skrifarAllir velkomnir á kynningarfund í kvöld!Fólk er hvatt til þess að mæta í kvöld á opinn kynningarfund sem Akureyri - handboltafélag verður með fyrir stuðningsmenn, og í raun alla bæjarbúa, í tilefni upphafs Íslandsmótsins í handknattleik. Fundurin verður í nýjum sal á efri hæð Kaffi Akureyrar við Strandgötu, og hefst hann klukkan 20.- Leikmannakynning
- Mótafyrirkomulagið
- Þjálfararnir spá í veturinn
- Ársmiðar seldir
- Samningar við samstarfsfyrirtæki undirritaðir
- Léttar veitingar
Fyrsti leikur kvennnaliðsins var í gærkvöldi, þegar stelpurnar töpuðu fyrir Val í Reykjavík. Strákarnir hefja keppni á morgun, gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ kl. 16.
Fyrstu heimaleikirnir eru þessir:
N1 deild karla Akureyri - Fram laugardaginn 22. september kl. 16.00 N1 deild kvenna Akureyri - FH sunnudaginn 23. september kl. 16.00 |