Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Búningarnir í góðum höndum

14. september 2007 - Unglingaráð skrifar

Umsjón með búningum yngri flokkanna

Guðrún Steinþórsdóttir (mamma tvíburanna Sigþórs og Hjördísar í 4.fl.) hefur tekið að sér að sjá um búningana fyrir alla yngri flokka í vetur. Hún ætlar að þvo öll settin eftir keppni og sjá um að ekkert vanti í þau og að treyjurnar séu í góðu lagi. Hún tekur við þessu nauðsynlega starfi af Kristínu Jóhannsdóttur sem hefur haft yfirumsjón með því undanfarin ár.

Við bjóðum Guðrúnu velkomna til starfa og teljum að búningarnir verði áfram okkur til sóma.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson