 Okkar menn á erlendum vettvangi
| | 17. september 2007 - Akureyri Handboltafélag skrifar"Okkar menn í útlandinu" - Arnór góður með FCK"Okkar menn" voru í eldlínunni með félögum sínum í Danmörku, Þýskalandi, Spáni og Noregi um helgina. Heimasíðan mun fylgjast vel með fyrrverandi leikmönnum Þórs og KA, og Akureyrarliðsins, sem verða í baráttunni annars staðar en hér heima.- Arnór Atlason og félagar í FC Kaupmannahöfn unnu Joachim Boldsen og félaga í AaB á útivelli 27-24 í dönsku 1. deildinni og lék Arnór vel í leiknum sem var í beinni útsendingu á DR1. Arnór gerði fimm mörk.
- Árni Þór Sigtryggsson gerði 1 mark þegar BM Fraikin Granollers unnu Pilotes Posada 27-26 í spænsku 1. deildinni, eins og fram kom á heimasíðunni um helgina. Spænska deildin hófst um helgina og þetta var því fyrsti "alvöru" leikur Árna með nýja liðinu.
- Vfl Gummersbach vann TuS N-Lübbecke 29-23 á útivelli í þýsku 1. deildinni (Bundesligunni) og var Guðjón Valur Sigurðsson með sjö mörk.
- Tusem Essen lið Halldórs Sigfússonar gerð óvænt jafntefli við stórlið SG Flensburg í Þýskalandi 29-29 en Halldór var ekki í leikmannahóp Essen að þessu sinni.
- TSV H.-Burgdorf tapaði á heimavelli 31 - 32 fyrir ASV Hamm og gerði Heiðmar Felixson 5 mörk fyrir Burgdorf í leiknum.
- Í Noregi fékk Bodö lið Elverum, með þá Axel Stefánsson og Samúel Ívar Árnason innanborðs, í heimsókn og sigraði Elverum 33-31. Samúel var ekki á meðal markaskorara að þessu sinni.
- Fücshe Berlin lið Andrius Stelmokas vann sinn fyrsta sigur um helgina, er liðið lagði Grosswaldstadt 29 - 23. Stelmokas gerði 2 mörk, en þurfti að yfirgefa leikvöllinn eftir 38 mínútur vegna 3x tveggja mínútna brottvísana.
- Að lokum hefur Hreiðar Guðmundsson leik með sínu nýja liði Savehof í Svíþjóð þann 19. september.
|