 Arna skoraði þrjú gegn Val
| | 17. september 2007 - BHB skrifarValur - Akureyri Kvennaliðið spilaði sinn fyrsta leik í ár gegn mjög sterku liði Valsara síðastliðið fimmtudagskvöld. Hægt er að segja að ekki hafi gengið næganlega vel en leikurinn endaði 33-12 Vals stúlkum í vil. Í hálfleik var staðan 14-3 og sem dæmi um dapran fyrri hálfleik þá kom annað mark Akureyrar ekki fyrr en á 23. mínútu leikssins.
Emilía stóð sig einna best í leiknum og varði markið mjög vel, sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem hún varði bæði víti og dauðafæri.
Í heildina var leikur liðsins mjög slakur. Sóknarleikurinn var frekar lélegur og skotin slöpp, t.d. fóru fjögur víti forgörðum, vörnin var skárri en gæti vel verið betri.
Mörk Akureyrar:
Steina 4 (2) Arna 3 Anna 2 (1) Emma 1 Ester 1 Lilja 1
Næsti leikur Akureyrar er gegn FH á heimavelli á sunnudaginn 23. september.
 Kvennaliðið á kynningarfundinum |