 Það var kraftur í Andra Snæ í kvöld en hann gerði 11 mörk
| | 31. október 2007 - Akureyri handboltafélag skrifarUmfjöllun handbolta.is um leikinn við ÍBVAkureyri vann ÍBV í Eyjum 26-35, eftir að staðan hafði verið 13-15 í hálfleik.
Eftirfarandi umfjöllun um leikinn er fengin af handbolti.is
Það var mikil barátta í liðunum í fyrri hálfleik og hafði Akureyri undirtökin og náði allt að fjögra marka forystu en Eyjamenn náðu með mikilli baráttu að minnka muninn í tvö mörk fyrir hálfleik. Þannig að staðan í hálfleik var 13-15.
Sama barátta var upp á teningnum fyrstu mínútur síðari hálfleiks en þá sprungu Eyjamenn. Er á leið seinni hálfleik var Akureyri komið með tíu marka forystu 18-28 og eftir það var ekki aftur snúið fyrir Eyjamenn og lokatölur leiksins urðu 26-35 eins og áður sagði.
Það sem helst bar til tíðinda í leiknum var að Jónatan Magnússon var fluttur á sjúkrahús vegna aðsvifs og Gintaras lék sinn fyrsta leik fyrir ÍBV.
Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Akureyrar, sagðist vera sáttur við stigin tvö en fyrri hálfleikur hefði verið dapur hjá þeim en í síðari hálfleik hefði gengið betur. Hann sagði samt sem áður að hinu ungu markmenn ÍBV hefðu um tíma gert þeim erfitt fyrir t.d. úr dauðfærunum.
Grétar Eyþórsson, leikmaður ÍBV, var ekki sáttur við leik ÍBV og sagði að þeir ættu enn mikið inni, þar sem t.d. það hefði vantað tvo öfluga leikmenn í liðið auk þess sem von væri á örfhentri skyttu til liðs við ÍBV.
Markaskorarar fyrir ÍBV voru: Sindri Haraldsson 6, Leifur Jóhannesson 5, Grétar Eyþórsson 5, Nikolay Kulikov 3, Þórarinn Ingi Valdimarsson 3, Gintaras Savukynas 3 og Brynjar Óskarsson 1.
Vaktina mest allan fyrri hálfleik stóð Friðrik Sigmarsson og varði ágætlega. Í seinni hálfleik og restina af fyrri hálfleik stóð Kolbeinn Arnarsson vaktina og varði nokkuð vel.
Markaskorarar fyrir Akureyri voru: Andri Snær Stefánsson 11, Goran Gusic 8, Magnús Stefánsson 5, Ásbjörn Friðriksson 4, Einar Logi Friðjónsson 3, Rúnar Sigtryggsson 2, Nikolaj Jankovic 1 og Hörður Sigþórsson 1.
Markverðirnir Sveinbjörn Pétursson og Siguróli Sigurðsson vörðu þolanlega í leiknum.
Dómarar voru þeir Júlíus Sigurjónsson og Magnús Björnsson. Áhorfendur voru í kringum 150. |