Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Lovísa átti fína spretti í markinu





1. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar

Stelpurnar töpuðu fyrir HK

Því miður barst heimasíðunni ekki umfjöllun um leik liðanna um síðustu helgi en við birtum hér á eftir umfjöllun Vikudags um leikinn.

Akureyri og HK öttu kappi í DHL-deild kvenna í handbolta í KA-heimilinu um helgina. HK hafði að lokum öruggan 10 marka sigur 36-26 en staðan í hálfleik var 18-17 HK í vil.

Fyrri hálfleikur var mjög jafn og ekki að sjá á Akureyrarstelpum að þær hafi tapað öllum leikjum með miklum mun í vetur. Þær spiluðu skemmtilegan sóknarleik og voru ákveðnar í sínum aðgerðum. Vörnin hins vegar var ekki góð, frekar en hjá HK enda gefa hálfleikstölurnar það augljóslega til kynna en þá var staðan 18-17 fyrir HK.

Seinni hálfleikur byrjaði mjög illa fyrir Akureyri, HK skoraði sex mörk gegn einu og staðan orðin 24-18 fyrir HK. Þá var Jónatan Magnússyni þjálfara Akureyrar nóg boðið og tók hann leikhlé. Orð Jónatans virðast hafa haft sitt að segja því að næstu mínútur unnu Akureyrarstelpur sig hægt en örugglega inn í leikinn og þegar um 12 mínútur liðu leiks var munurinn ekki nema þrjú mörk, 27-24.

HK tók þá leikhlé, réðu ráðum sínum og það virkaði heldur betur. Á lokakafla leiksins skoraði HK níu mörk gegn einungis tveimur frá Akureyri og þær hreinlega völtuðu yfir heimastúlkurnar sem voru algjörlega heillum horfnar á þessum leikkafla. Lokatölur urðu því 36-26 HK í vil.

Arna Erlingsdóttir spilaði mjög vel í fyrri hálfleiknum og skoraði þá sex af sjö mörkum sínum. Anna Teresa Morales spilaði sinn besta leik í vetur og skoraði sex mörk af línunni. Þá skoraði Þórsteina Sigurbjörnsdóttir fjögur mörk. Þá átti Lovísa Eyvindsdóttir ágætis spretti í markinu og varði tólf skot á þeim rúma hálftíma sem hún spilaði.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson