Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Bjartur í leik með ÍR2 gegn Akureyri frá því í fyrra

9. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar

Bjartur Máni tók við verðlaunum Gorans

Goran Gusic var valinn besti hægri hornamaður fyrstu 7 umferða N1 deildarinnar í gær. Hann hinsvegar gat ekki tekið á móti verðlaununum fyrir að hafa verið valinn. Í stað hans mætti annar hægri hornamaður sem við Akureyringar könnumst vel við.

Það var enginn annar en Bjartur Máni Sigurðsson fyrrverandi leikmaður KA sem tók við verðlaunum Gorans. Bjartur leikur um þessar mundir með liði ÍR en þar er hann uppalinn. Bjartur skoraði 4 mörk í hægra horninu er ÍR tók á móti Akureyri á dögunum í Eimskips-Bikarnum.


Bjartur er þriðji maður frá hægri (myndin er tekin úr Fréttablaðinu í dag)
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson