Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Hvað gera þessir menn gegn Aftureldingu 2?



19. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri dróst gegn Aftureldingu 2

Dregið var í 8-liða úrslit í Eimskips bikarnum í hádeginu í dag. Akureyri Handboltafélag dróst gegn Aftureldingu 2 og verður að viðurkennast að möguleikar liðsins á að komast í undanúrslit keppninnar eru miklar. Leikurinn verður heimaleikur Aftureldingar og verður leikinn 2. eða 3. desember.

Bikarmeistarar Stjörnunnar munu mæta Fram í Safamýri.

Íslandsmeistarar Vals munu mæta Haukum á Hlíðarenda.

Utandeildarliðið Þróttur Vogum mætir svo 1. deildarliði Víkings.

Það er ljóst að tvö sterk úrvalsdeildarlið munu detta úr leik og að minnsta kosti eitt neðri deildarlið mun komast áfram í undanúrslit.

Ljóst er að gengi Akureyrar Handboltafélags hefur ekki verið eins og vonir voru í deildinni en liðið er í hörkuséns um að komast í undanúrslit í Eimskips Bikarnum.

Það má þó alls ekki vanmeta lið Aftureldingu 2 en liðið hefur slegið út Úrvalsdeilarlið ÍBV og Fram 2. Þeirra besti leikmaður er gamla kempan Bjarki Sigurðsson sem er þjálfari Aftureldingar í dag.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson