 Sævar og Rúnar þurfa að rífa sína menn upp

| | 19. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifarFram-Akureyri mfl. karla: slæmt tapOkkar piltar fóru tómhentir úr Framhúsinu í Safamýrinni í gær. Reyndar skoruðu þeir fyrsta markið í leiknum en það var líka í eina skiptið sem þeir höfðu forystu í leiknum. Fram svaraði með næstu fjórum mörkum og leiddu allan fyrri hálfleikinn, náðu mest sex marka forystu 11-5 undir lok hálfleiksins en þá spýttu okkar menn í lófana, skoruðu næstu þrjú mörk og breyttu stöðunni í 11-8 en staðan í hálfleik var 12-8 Fram í vil.
Hörður Flóki stóð í markinu og átti prýðisgóðan leik með tólf skot varin.
Framan af seinni hálfleik hélst munurinn þrjú mörk var t.d. 16-13 en um miðjan síðari hálfleikinn kom skelfilegur kafli þar sem Fram gerði gjörsamlega út um leikinn, breyttu stöðunni úr 20-16 í 25-16 og lokatölurnar urðu síðan átta marka tap, 30-22.
Sævar Árnason, þjálfari var að vonum ósáttur með frammistöðuna og í Fréttablaðinu í dag er haft eftir honum: "Vörnin okkar og markvarsla voru fín í fyrri hálfleik, en sóknarlega vorum við sjálfum okkur verstir og ég ætla vona að mínir menn rífi sig upp. Við fengum fín færi til að koma okkur inn í leikinn þegar munurinn var aðeins þrjú mörk í seinni hálfleik, en eins og ég segi þá fórum við illa af ráði okkar og það er ekki hægt að tala um óheppni. Maður skapar sér sína heppni og við verðum að rífa okkur upp eftir þessa rassskellingu," sagði Sævar.
Mörkin skoruðu: Magnús og Goran 7 hvor, Einar Logi 3, Þorvaldur 2, Andri, Ási og Heiðar 1 mark hver.
Hörður Flóki varði 17 bolta í leiknum. |