Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Magnús enn fyrir sunnan en er þó á batavegi

25. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar

Magnús trúlega sloppið við bakmeiðsl

Eins og við greindum frá í gær var Magnús Stefánsson fluttur á sjúkrahús þegar u.þ.b. 13 mínútur voru liðnar af leiknum við Hauka. Magnús fékk mikið högg á bakið og lá óvígur eftir. Magnús hefur verið í rannsókn á Landspítalanum en þær fréttir voru að berast af Magnúsi að svo virðist sem bakið hafi sloppið og sé í lagi en hann sé þó enn til skoðunar á spítalanum.

Við sendum Magnúsi bestu kveðjur og vonumst til að hann losni sem fyrst út og að hann nái sér sem fyrst.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson