 Árni er kominn í 16 liða úrslit í evrópukeppni félagsliða

| | 26. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar"Okkar menn í útlandinu" - Árni og Arnór komnir áframAð venju voru okkar menn iðnir við kolann með liðum sínum á erlendum vettvangi um helgina.- Árni Þór Sigtryggsson og félagar í BM Granollers unnu HC Varna 37 – 26 á útivelli í Evrópukeppni félagsliða. Árni Þór gerði 3 mörk í leiknum og er BM Granollers komið í 16-liða úrslit keppninnar.
- FC Kaupmannahöfn vann HK öruggleg í Köben 36-24 og er komið í 16-liða úrslit sömu keppni og Granollers. Arnór Atlason lék að nýju með FCK eftir að hafa náð sér af meiðslum og gerði eitt mark í leiknum.
- Sävehof, lið Hreiðars Levý Guðmundssonar er úr leik í Evrópukeppni Félagsliða, eftir að hafa tapað fyrir HC Skopje frá Makedóníu á heimavelli með 3 mörkum, 28-31. Sävehof tapaði einnig fyrri leiknum, 22-18 í Skopje.
- Heiðmar Felixson var með 9 mörk þegar Burgdorf vann SG Achim/Baden í norðurhluta þýsku 2. deildarinnar. Burgdorf er í 5. sæti.
|