 Stelpurnar með sitt markið hvor

| | 26. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifarU-20 landsliðið - Ester og Arna skoruðu í FæreyjumÍslenska u-20 ára landslið kvenna lék tvo vináttulandsleiki við A-landslið Færeyja um helgina og fóru báðir leikirnir fram ytra. Fyrri leiknum lauk með fimm marka sigri Íslands, 23-18 eftir að stelpurnar höfðu leitt í hálfleik 14-10. Okkar stelpur, Ester Óskarsdóttir og Arna Erlingsdóttir skoruðu sitt markið hvor í leiknum.
Síðari leiknum lauk hins vegar með jafntefli 24-24 eftir að Færeyingar höfðu haft eins marks forystu 12-11 í hálfleik. Hvorki Ester né Arna voru meðal markaskorara í þeim leik. |