Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það hafa alltaf verið hörkuleikir þegar Valur mætir á svæðið

28. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri gegn Íslandsmeisturum Vals á fimmtudag

Nú þurfa menn að taka á honum stóra sínum og halda áfram þar sem frá var horfið í síðasta leik og leggja Íslandsmeistara Vals. Lið Akureyrar hefur sýnt það í tveim síðustu leikjum gegn toppliðum deildarinnar að það er til alls líklegt. Síðasti heimaleikur gegn HK var æsispennandi og topplið Hauka mátti þakka fyrir jafntefli á heimavelli sínum um síðustu helgi. Nú er bara að halda baráttunni áfram, flykkjast á leikinn kl. 20. á fimmtudagskvöldið og styðja sína menn.

Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson