 Ieva og Stelmokas blómum skrýdd
| | 29. nóvember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifarMynd af tvíburaforeldrunumEins og við greindum frá í gær eignuðust Andreas Stelmokas fyrrum leikmaður Þórs og KA og nú leikmaður Füchse Berlin í Þýsku Bundesligunni og kona hans Ieva tvíbura í síðustu viku.
Í kjölfar fréttarinnar leitaði Þórir Tryggvason, hirðljósmyndari okkar í myndasafninu sínu og fann þessa skemmtilegu mynd af þeim hjónum sem trúlega er tekin þegar hann var valinn íþróttamaður ársins hjá KA.
Þá vill svo skemmtilega til að fyrir nákvæmlega tveim árum (29. nóvember 2005) birtist á KA síðunni viðtal sem Stefán Árnason tók við Stelmokas sem þá lék með Göppingen í Þýskalandi. Í viðtalinu segir Stelmokas m.a.
"Við söknum Akureyri mikið. Hér eyddum við fimm árum ævi okkar og lítum á bæinn sem okkar annað heimili núna. Konan mín, Ieva, og ég munum vel eftir Brynjuísnum og því hve falleg jólin voru á Akureyri, með öllum ljósunum. Við söknum vina okkar og KA-manna mikið."
Hægt er að lesa allt viðtalið við Stelmokas með því að smella hér. |