 Bikarævintýri Akureyrar heldur áfram
| | 2. desember 2007 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri komið áfram í undanúrslit bikarsinsNú rétt í þessu var Akureyri að tryggja sér sæti í undanúrslit Eimskips Bikarsins. Liðið rúllaði yfir lið Aftureldingar 2 en lokatölur voru 20-39 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 4-20, leikið var að Varmá. Frábær árangur hjá liðinu, gengið í deildinni hefur ekki verið nógu gott en liðið er að standa sig í Bikarnum.
Ásamt Akureyri eru Íslandsmeistarar Vals búnir að tryggja sér sæti í undanúrslitunum en á morgun kemur í ljós hvaða tvö lið fylgja Akureyri og Val áfram. Leikir morgundagsins eru:
Fram - Stjarnan Þróttur Vogum - Víkingur |