 Leikmenn Akureyrar eru á landsliðsæfingum þessa dagana
| | 4. janúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarLeikmenn Akureyrar valdir á landsliðsæfingarNú á dögum hafa ýmsir leikmenn Akureyrar Handboltafélags verið valdir til landsliðsæfinga með sínum aldursliðum. Hér er bæði um karla- og kvennaliðin að ræða. Þetta eru eftirtaldir leikmenn.
U-20 ára landslið karla
Þrír leikmenn Akureyrar voru valdir í 20 manna æfingahóp sem verður við æfingar fyrstu vikuna í janúar. Þetta eru Ásbjörn Friðriksson, Heiðar Þór Aðalsteinsson og Sveinbjörn Pétursson.

Fyrsta æfing hópsins verður miðvikudaginn 2. janúar kl.16.00 í Seljaskóla, þjálfari liðsins er Heimir Ríkarðsson.
U-18 ára landslið kvenna
Þrír leikmenn Akureyrar voru valdir í 25 manna æfingahóp sem verður við æfingar helgina 5.-6. janúar. Þetta eru þær Arna Erlingsdóttir, Emma H. Sardarsdóttir og Unnur Ómarsdóttir.

Fyrsta æfing liðsins er laugardaginn 5.janúar kl.12.15 í Fylkishöll en þjálfari liðsins er Guðríður Guðjónsdóttir.
U-20 ára landslið kvenna
Ester Óskarsdóttir var valin í 20 manna æfingahóp sem verður við æfingar í byrjun janúar. Fyrsta æfingin er föstudaginn 4. janúar kl.10:00 í Laugardalshöll. Þjálfari liðsins er Stefán Arnarsson. |