Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það verður nóg að gera hjá Örnu og félögum um helgina

11. janúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Leikir um helgina hjá kvennaliðunum

Fyrsti meistaraflokksleikur Akureyrar á þessu ári verður á laugardaginn þegar kvennaliðið tekur á móti sterku liði Stjörnunnar. Vegna afmælishátíðar KA fer leikurinn fram í Íþróttahöllinni og hefst klukkan 15:00. Strax að loknum leik meistaraflokksins mætast sömu lið í unglingaflokki kvenna og fer sá leikur einnig fram í Íþróttahöllinni og hefst klukkan 16:30.

Það er því ljóst að það verður mikið álag á margar stelpnanna sem leika með báðum flokkum. Unglingaflokksliðin mætast svo öðru sinni á sunnudaginn klukkan 14:30 og verður sá leikur í KA Heimilinu.

Eins og menn muna þá átti unglingaflokkurinn frábæra leiki um síðustu helgi og komust þá í 8 liða úrslit bikarkeppninnar. Það er því full ástæða til að hvetja alla stuðningsmenn til að mæta í Höllina á laugardaginn og svo aftur í KA heimilið á sunnudaginn.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson