 Leikmaður Akureyrar Handboltafélags vorið 2007
| | 15. janúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarAndri Snær í öðru sæti sem íþróttamaður KA 2007Í afmælishófi í tilefni 80 ára afmælis KA í síðustu viku var lýst kjöri íþróttamanns félagsins árið 2007. Andri Snær Stefánsson, sem var valinn besti leikmaður meistaraflokks Akureyrar Handboltafélags í lokahófi liðsins síðastliðið vor, hafnaði í öðru sæti í kjörinu. Auk þess að leika sjálfur með Akureyri Handboltafélagi var þess getið að Andri Snær hefði unnið frábært starf innan KA við þjálfun yngri flokka og verið félaginu til sóma. Reyndar gat Andri Snær ekki veitt viðurkenningunni viðtöku sjálfur í afmælishófinu þar sem hann var á sama tíma upptekinn á æfingu með liði Akureyrar.
 Andri Snær með viðurkenninguna frá KA Íþróttamaður KA var kjörinn Davíð Búi Halldórsson blakmaður sem fyrir skömmu var útnefndur blakmaður ársins af Blaksambandi Íslands og í þriðja sæti hafnaði júdómaðurinn Eyjólfur Guðjónsson sem vann frábæra sigra í júdó á árinu. Heimasíðan óskar Andra Snæ ásamt þeim Davíð og Eyjólfi hjartanlega til hamingju með viðurkenningarnar. |