 Stelpurnar sýndu flottan leik á laugardaginn


| | 15. janúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarSigur og tap hjá unglingaflokki kvennaUnglingaflokkur kvenna hjá Akureyri Handboltafélagi lék tvo deildarleiki um helgina gegn sterku liði Stjörnunnar. Fyrir leikina var Stjarnan eina taplausa liðið í deildinni og hafði raunar unnið alla sex leiki sína. Fyrri leikurinn var í Höllinni á laugardaginn og er skemmst frá því að segja að Akureyrarstelpurnar mættu einbeittar til leiks, staðráðnar í að hefna fyrir tapið í meistaraflokksleiknum sem þá var nýlokið. Stjarnan hafði þó betur til að byrja með og leiddi með tveim mörkum í hálfleik.
Það hefur greinilega verið kraftur í hálfleiksræðu Jóhannesar þjálfara því að í seinni hálfleik snerist dæmið gjörsamlega við og stelpurnar léku við hvern sinn fingur og sýndu sinn albesta leik í vetur. Það er skemmst frá því að segja að Akureyrarstelpur unnu glæsilegan fimm marka sigur, 32-27 og fyrsta tap Stjörnunnar staðreynd.
Liðin mættust svo aftur á sunnudaginn en því miður tókst Akureyrarstúlkum ekki að fylgja eftir sigrinum frá deginum áður. Stjarnan leiddi með tveim mörkum í hálfleik, 10-12 og leiknum lauk síðan með þriggja marka sigri Stjörnunnar 19-22.
Eftir þessa tvo leiki eru stelpurnar í fjórða sæti deildarinnar með 8 stig eftir 8 leiki, fjóra sigra og fjögur töp. Þá eru þær komnar í 8-liða úrslit bikarkeppninnar og eiga því alla möguleika á að komast lengra þar. |