 Loksins, loksins fáum við að sjá þessa kappa í sjónvarpinu á sunnudaginn


| | 31. janúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarDeildin hefst hjá körlunum - SjónvarpsleikurN1 deildin hjá körlunum fer af stað núna um helgina og hefja okkar menn leikinn í Mosfellsbænum sunnudaginn 3. febrúar klukkan 16:00. Leikurinn átti upphaflega að vera á laugardeginum en hefur sem sé verið færður yfir á sunnudaginn. Þau undur hafa jafnframt gerst að RUV ætlar að sýna leikinn í beinni útsendingu sem hefst tíu mínútum fyrir leik þ.e.a.s. klukkan 15:50 á sunnudag samkvæmt dagskrárvef RUV.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig okkar menn koma undan þessu langa hléi en vonandi hefur Noregsferðin gert þeim gott og þeir komi margefldir til leiks.
Jafnframt mun 2. flokkur karla standa í ströngu um helgina en þeir munu leika tvo deildarleiki fyrir sunnan um helgina, við Víking á föstudag og HK á laugardag. Þess má geta að þetta verða fyrstu leikir liðsins síðan 11. nóvember á síðasta ári. Á þriðjudagskvöldið leikur 2. flokkur síðan margfrestaðan bikarleik við Val í Vodafone höllinni. |