 Það gekk ekki hjá stelpunum á laugardaginn

| | 5. febrúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarUnglingaflokkur kvenna tapaði fyrir FylkiLið Akureyrar í unglingaflokki hefur staðið sig mjög vel í vetur en því miður náðu þær ekki að sýna sitt besta þegar þær léku við lið Fylkis á laugardaginn. Markmaður Akureyrar, Emelía Sigmarsdóttir, var fjarri góðu gamni vegna meiðsla.
Jafnræði var með liðunum framan af en um miðjan fyrri hálfleikinn meiddist einn lykilmanna liðsins, Arna Valgerður Erlingsdóttir, og við það dró nokkuð af heimastúlkum og staðan í hálfleik, 14-16. Í síðari hálfleik var hart barist en fljótlega tókst Fylkisstúlkum að ná undirtökunum í leiknum og Akureyrarstúlkur urðu að játa sig sigraðar en lokatölur voru, 26-31.
Eftir helgina eru stelpurnar í 5. sæti deildarinnar með 10 stig eftir 10 leiki. Þær hafa unnið 5 leiki og reyndar tapað 5 leikjum. Stelpurnar eiga eftir 11 leiki í deildinni þannig að það eru fjölmörg stig ennþá í pottinum auk þess sem þær eru komnar í undanúrslit bikarkeppninnar. |