 Það er mikilvægur leikur hjá Hákoni og félögum á miðvikudaginn
| | 26. febrúar 2008 - Þjálfarar skrifarKemst 2. flokkurinn í Höllina um helgina?2. flokkur karla leikur gegn Víkingum í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ á miðvikudag klukkan 18 og fer leikurinn fram í KA húsinu.
Óhætt er að segja að liðið hafi farið grýtta leið í gegnum bæði 16 og 8 liða úrslitin en strákarnir lögðu FH í 16 liða úrslitunum nokkuð sannfærandi en það er eini leikurinn sem FH ingar hafa tapað í vetur. Í 8 liða úrslitunum vannst svo fimm marka sigur á útivelli gegn Val.
Bikarúrslitaleikurinn sjálfur fer svo fram um komandi helgi en hann verður leikinn á sunnudaginn 2. mars í Laugardalshöllinni. Í hinum undanúrslitaleiknum eigast við Stjarnan og HK og fer sá leikur fram í kvöld, þriðjudagskvöld, í Mýrinni.
Við hvetjum alla til að mæta í KA húsið kl. 18 á miðvikudag og styðja við bakið á strákunum á leið sinni í úrslitaleikinn. |