 Stelpurnar eiga alla möguleika á að komast í bikarúrslitaleikinn
| | 27. febrúar 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarStórleikur hjá unglingaflokki kvenna á fimmdudaginnÁ morgun, fimmtudag leikur unglingaflokkur kvenna í undanúrslitum bikarkeppninnar og er um að ræða útileik gegn Fram. Leikið í Framhúsinu og hefst leikurinn klukkan 15:15. Nú heitum við á stelpurnar að fylgja fordæmi strákanna í 2. flokki og leggja allt í sölurnar til að komast í úrslitaleikinn sjálfan.
Það sem af er keppninni hafa stelpurnar unnið Gróttu 21-27 og í 8 liða úrslitum unnu þær stórsigur á FH 22-36. Akureyri og Fram hafa jafnmörg stig í deildarkeppninni en Framstúlkur hafa reyndar leikið þrem leikjum færra. Liðin hafa mæst einu sinni í vetur en þá höfðu Framstúlkur betur, 25-21 og ljóst að stelpurnar verða að berjast af fullum krafti til að komast í úrslitaleikinn. |