Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Loksins tókst að vinna sigur á Fram

31. mars 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Góður sigur hjá unglingaflokki kvenna

Unglingaflokkur kvenna fór suður yfir heiðar um helgina og lék við Fram í deildinni. Liðin höfðu fyrir þennan leik mæst tvisvar, annarsvegar í deildinni og einnig í undanúrslitum bikarsins og Framstúlkur unnið báða leikina.

Í þetta sinn unnu Akureyrarstúlkur hins vegar öruggan níu marka sigur, 26-35 eftir að hafa haft tíu marka forystu í hálfleik, 9-19.
Samkvæmt okkar heimildum skoraði Jana Salóme átta mörk í leiknum og Lilja Þórisdóttir svipað.

Stelpurnar hafa verið í góðum gír í síðustu leikjum og eru sem stendur í 3. sæti deildarinnar á eftir Fylki og Stjörnunni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson