Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það var létt yfir Hannesi Karlssyni í morgun

1. apr. 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Fjárhag Akureyrar Handboltafélags borgið!

Þau stórmerku tíðindi gerðust núna í morgun að bæjarstjórn Akureyrar kom öll á fund með stjórn Akureyrar Handboltafélags og greiddi út í hönd allar fyrri skuldir gömlu handboltadeilda KA og Þórs með vöxtum og verðbótum frá því sumarið 2006. Bæjarstjóri kvaðst harma þann drátt sem orðið hefur á því að efna þetta loforð sem bæjarstjórnin gaf út þegar unnið var að stofnun hins nýja félags.

Í samtali við heimasíðuna sagði Hannes Karlsson, formaður félagsins: 'Við erum svo sannarlega búin að bíða lengi eftir þessum degi enda er þetta búið að taka langan tíma og hefur bitnað illilega á rekstri félagsins allt til þessa dags. Það að losna við þennan gamla skuldahala gerir okkur kleift að standa við ýmsar fjárhagslegar skuldbindingar sem og loksins að leggja grunninn að nýju handboltastórveldi á Akureyri, bænum og íbúum hans til framdráttar.'

Bæjarstjóri og stjórn Akureyrar Handboltafélags hafa boðað til opins fundar í KA heimilinu í dag klukkan 17:00 þar sem greiðslan verður afhent formlega við hátíðlega athöfn auk þess sem lýst verður ákvörðun bæjaryfirvalda frá því í morgun að hefjast handa við lagningu parketgólfs í KA heimilið og Íþróttahöllina strax og keppnistímabilinu lýkur. Dágóður tími er síðan bæjaryfirvöld lofuðu þessum framkvæmdum og því gleðilegt að tími framkvæmda sé runninn upp.

Við hvetjum alla íþróttaáhugamenn til að fjölmenna í KA heimilið klukkan 17:00 í dag, upplifa viðburðinn og þiggja léttar veitingar, þetta er vissulega einn stærsti dagur í íþróttalífi Akureyrar!
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson