 Það er sitthvað loforð og efndir
| | 2. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarFrétt um loforðaefndir bæjaryfirvalda reyndist aprílgabbÞví miður var frétt okkar í gær um að bæjaryfirvöld hefðu áveðið að standa við loforð sín varðandi fjármál Akureyrar handboltafélag aprílgabb. Það er hins vegar staðreynd að á sínum tíma var sameining handboltadeilda KA og Þórs, sem varð að núverandi Akureyri handboltafélag, sérstakt áhugaefni ráðamanna bæjarins. Þeir lofuðu fjárframlagi þannig að nýtt félag gæti byrjað með hreint borð en þyrfti ekki að dragnast með gamlan skuldahala fyrri ára.
Þessar yfirlýsinar bæjaryfirvalda hafa því miður reynst orðin tóm eins og ýmislegt annað úr þeim herbúðum. Hefur einhver trú á því til dæmis að yfirlýsingar um parketgólf í KA heimilið og Íþróttahöllina verði annað en innantómt bull til að teyma fólk áfram á asnaeyrumum? maður spyr sig! |