Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Fullt hús hjá Köru og félögum í gær

10. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Unglingaflokkur kvenna: Tveir sigrar á FH

Það var nóg að gera hjá leikmönnum Akureyrar og FH í unglingaflokki þegar liðin mættust tvívegis með u.þ.b. hálftíma stoppi á milli leikja.

Þessari törn lauk þannig að Akureyri sigraði í báðum leikjunum, 20-15 og 22-19 og skiluðu stelpurnar fjórum stigum í hús. Með þessum stigum tryggðu stelpurnar þriðja sætið í deildinni en Fram stelpurna sem sitja í 4. sætinu geta ekki náð Akureyrarliðinu. Þessi lið mætast svo í KA heimilinu á sunnudaginn klukkan 13:00 en það er einmitt síðasti leikur Akureyrarliðsins í deildarkeppninni á þessu tímabili.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson