 Hreiðar minnir á sig fyrir landsliðið
| | 10. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarHreiðar Levý fer hamförum í SvíþjóðHreiðar Levý Guðmundsson var í banastuði í gær með liði sínu Sävehof, sem er í úrslitakeppninni um sænska meistaratitilinn. Fyrsti leikur Sävehof og Ystad fór fram í gær og átti Hreiðar stórleik, í fyrri hálfleik varði hann tólf skot og geta félagar hans þakkað honum að hafa haft 16-13 forystu í leikhléi. Hreiðar var ekki hættur og tók tíu bolta til viðbótar í seinni hálfleik og Sävehof vann góðan sigur 36-27.
Hreiðar varði sem sé 22 bolta í leiknum á meðan markvörður Ystad varði aðeins 9 skot. Grípum aðeins niður í frásögn af leiknum á heimasíðu Sävehof:
Ändå kan man säga att det var Hreidar Gudmundson i målet som vann matchen åt Sävehof. Eller kanske man ska säga att det var Ystads målvakter som förlorade den? Hur som helst var det en gåta att Ystad var kvar i matchen i halvtid (16-13) med tanke på att de bara hade tre målvaktsräddningar mot Hreidars 12. Totalt vann Sävehof räddningarna med 22-9.
|