Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Það er alvöruleikur framundan hjá Arndísi og félögum

21. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Unglingaflokkur kvenna kominn í 4 liða úrslit

Unglingaflokkur kvenna sigraði lið ÍBV á föstudaginn 25-18 í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins og tryggðu sér þar með sæti í 4. liða úrslitunum. Á þessari stundu er ekki ljóst hver verður andstæðingur þeirra en hinir leikir 8-liða úrslitanna fara fram í kvöld.

Fjögurra liða úrlitin fara fram í Vodafone höllinni (heimavöllur Vals) á miðvikudaginn 23. apríl og leika Akureyrarstúlkur klukkan 18:00. Við óskum stelpunum til hamingju og sendum jafnframt baráttukveðjur í miðvikudagsleikinn en úrslitaleikurinn verður svo leikinn á fimmtudag.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson