Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Baráttukveðjur til Örnu og stelpnanna

22. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Unglingafl. kvenna: Undanúrslitaleikur á morgun miðvikudag

Nú er ljóst að það verður Stjarnan sem Akureyrarstúlkur í unglingaflokki glíma við í 4-liða úrslitum Íslandsmótsins. Leikið verður í Vodafone höllinni og hefst leikurinn klukkan 18:00.

Stjarnan hafnaði í öðru sæti deildarinnar og Akureyri í því þriðja. Liðin mættust þrisvar í deildinni og sigraði Akureyri í einum leiknum 32-27 en Stjarnan vann tvívegis 19-22 og 24-18 þannig að það er ljóst að stefnir í hörkuleik og ljóst að okkar stúlkur ætla sér að fara alla leið í úrslitaleikinn.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson