 Halldór þekkir til strákanna í FH

| | 29. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar2. fl karla: Undanúrslitaleikur gegn FH á morgun miðvikudagÁ morgun miðvikudag hefjast undanúrslitin hjá 2. flokki karla. Leikið er á hlutlausum velli og fara leikirnir fram á Seltjarnarnesi. Akureyri mætir FH-ingum og hefst leikurinn klukkan 20:00. FH sigraði í öllum 18 leikjum sínum í deildinni í vetur og eina tap þeirra var gegn Akureyri í bikarnum.
Í hinum undanúrslitaleiknum mætast svo tvö lið úr norðurriðli, Valur og HK. Það sýnir kannski svart á hvítu hversu norðurriðillinn var miklu sterkari þar sem að Valsmenn, sem lentu í þriðja sæti norðurriðils, lögðu Stjörnumenn, sem urðu í öðru sæti suðurriðils, á þeirra eigin heimavelli í gær með 38 mörkum gegn 20. Leikur Vals og HK hefst á sama stað klukkan 18:00.
Á fimmtudeginum verður svo leikið um fyrsta og þriðja sæti Íslandsmótsins og hefjast þeir leikir klukkan 14:00 og 16:00 og eru þeir einnig leiknir á Nesinu.
Við hvetjum alla norðlendinga í Reykjavík til að kíkja á strákana og hvetja þá til sigurs í báðum leikjunum. |