Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Oddur verður á ferðinni næstu daga með U-18 landsliðinu

30. apríl 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Oddur Grétarsson valinn í U-18 landsliðið

Einn leikmaður Akureyrar handboltafélags, Oddur Grétarsson var valinn í unglingalandsliðshóp leikmanna fæddir 1990 og síðar. Liðið tekur þátt í undankeppni fyrir Evrópumeistaramótið skipað leikmönnum 18 ára og yngri sem haldið verður hér á landi dagana 9.-11. maí.

Liðið verður við æfingar núna um helgina en allar æfingar svo og leikirnir fara fram í íþróttahúsi ÍR-inga við Austurberg. Þjálfarar liðsins eru þeir Einar Guðmundsson og Einar Andri Einarsson.

Við óskum Oddi alls hins besta í þessu verkefni.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson