Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Rúnar fer með strákana í Austurbergið



28. ágúst 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Akureyri Handboltafélag á Reykjavík Open um helgina

Lið Akureyrar Handboltafélags tekur þátt í Reykjavík Open mótinu nú um helgina. Mótið er leikið í fjórum riðlum og leikur liðið í riðli með Selfossi og HK b. Samkvæmt leikjaskipulagi mótsins er fyrsti leikur strákanna klukkan 17:30 á föstudag og síðan er leikið við HK b klukkan 19:30 en allir leikir liðsins fara fram í Austurbergi og er leiktíminn 2x20 mínútur.

Á laugardagsmorgunn leika síðan leika liðin úr okkar riðli við liðin sem höfnuðu í sömu sætum í C riðli en þar leika HK, ÍR og unglingalið Hauka.

Úrslitaleikirnir verða síðan klukkan 16:30 og 18:00 og verðlaunaafhending í kjölfarið.

Okkar menn fara suður á morgun, föstudag og verður fróðlegt að sjá hvernig þeim gengur en þetta eru fyrstu æfingaleikir liðsins á undirbúningstímabilinu. Við hvetjum alla sem hafa tök á að mæta í Austurbæ og hvetja strákana.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson