 Árni Sigtryggsson átti fínan leik með Akureyri í dag
| | 29. ágúst 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarAkureyri sigraði sinn riðil á Reykjavík OpenÍ dag lauk riðlakeppninni á Reykjavík Open. Lið Akureyrar lék í D riðli ásamt liði Selfoss og HK b. Fyrsti leikur Akrureyrar var gegn Selfyssingum sem eru með hörkulið. Skemmst er frá að segja að Akureyri hafði góðan tveggja marka sigur en hver leikur er 2 x 20 mínútur.
Seinni leikurinn var síðan gegn HK b sem er skipað ýmsum gömlum hetjum og þar sigraði lið Akureyrar örugglega með 5 marka mun. Atkvæðamestir Akureyringa í dag voru þeir Andri Snær Stefánsson, Árni Sigtryggsson, Jónatan Magnússon auk þess sem Rúnar Sigtryggsson kom með nokkrar góðar bombur utan af velli.
Þessi úrslit þýða að Akureyri er sigurvegari D riðils og mætir aðallliði HK sem sigraði í C riðli og hefst leikur þeirra klukkan 8:00 í fyrramálið (laugardag). Reyndar er tvísýnt með þátttöku Jónatans í leikjum laugardagsins en hann varð fyrir ökklameiðslum í dag og sömuleiðis fékk Andri Snær slæmt högg á hnéð og kemur í ljós í fyrramálið hvort þeir geta spilað. En allavega voru menn tiltölulega sáttir með fyrstu tvo leikina þannig að byrjunin lofar góðu. Ljóst er að liðið leikur allavega tvo leiki til viðbótar á laugardaginn en allir þeir leikir fara fram í íþróttamiðstöðinni Austurbergi. |