 Jónatan, krafmikill ađ vanda og dreif sína menn áfram
| | 31. ágúst 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarReykjavík Open: Akureyri vann leikinn um 3. sćtiđReykjavík Open mótinu lauk í gćr og léku okkar menn úrslitaleik gegn Stjörnunni um 3. sćtiđ í mótinu. Liđiđ kom mjög vel stemmt í leikinn, vörnin fantagóđ og Hafţór varđi eins og berserkur. Stjarnan átti aldrei séns í baráttuglatt liđ Akureyrar sem leiddi í hálfleik međ sex mörkum, 14-8.
Sami kraftur var í liđinu í síđari hálfleik og fengu allir leikmenn í hópnum ađ spreyta sig. Lokatölur urđu fjögurra marka sigur 28-24 og bronsverđlaun í mótinu ţví stađreynd. Hafţór Einarsson varđi frábćrlega allan leikinn en markaskorunin dreifđist sem hér segir: Jónatan 7, Oddur 6, Andri Snćr 5, Árni 4, Nikolaj 3, Heiđar 2 og Rúnar 1.
Í heildina eru menn bara mjög kátir međ gengi liđsins, en liđiđ tapađi einungis einum leik í mótinu, gegn HK sem stóđ ađ lokum uppi sem sigurvegari mótsins eftir öruggan sigur á Fram 26-21 í úrslitaleik mótsins. |