Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Veitingahúsið Greifinn er bakhjarl okkar við framkvæmd mótsins

31. ágúst 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Greifamótið á Akureyri um næstu helgi

Árlegt æfingamót á Akureyri fer fram næsta föstudag og laugardag (5. og 6. september) Að þessu sinni er veitingahúsið Greifinn samstarfsaðili okkar og mótið því nefnt Greifamótið.

Nú þegar liggur fyrir að a.m.k. tvö aðkomulið mæta til leiks í karlaflokki, Fram og ÍR. Ekki er útilokað að fleiri lið bætist við og því liggur dagskrá mótsins ekki fyrir.

Það verður mikið um að vera í íþróttahúsum bæjarins um þessa helgi og því fer mótið fram í íþróttahúsi Síðuskóla að þessu sinni.

Fylgist með hér á síðunni þegar leikjaniðurröðun verður birt og fjölmennum svo á leikina og styðjum okkar stráka sem stóðu sig frábærlega á Reykjavíkurmótinu nú um helgina.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson