Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Jesper er klár í slaginn með Akureyri í vetur

3. september 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Jesper Sjøgren markvörður mættur til leiks

Eins og við greindum frá fyrr í sumar gerði Akureyri Handboltafélag samning við danska markvörðinn Jesper Sjøgren um að leika með liðinu í vetur. Jesper kom til Akureyrar á sunnudaginn og var mættur á sína fyrstu æfingu með liðinu í gærkvöldi. Jesper er 22 ára gamall og sýndi það á æfingunni að hann kann ýmislegt fyrir sér, snöggur og með góðar staðsetningar.

Það er því ljóst að markvarslan lofar góðu hjá liðinu í vetur en á nýafstöðnu Reykjavíkurmóti stóð Hafþór Einarsson vaktina með miklum ágætum og var með flesta varða bolta af markvörðum á mótinu.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson