Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Greifamótið markar upphaf handboltavertíðarinnar á Akureyri

4. september 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Greifamótið 2008 - byrjar á föstudaginn

Nú er búið að raða niður leikjum á Greifamótið. Auk Akureyrar Handboltafélags keppa það nýkrýndir Reykjavíkurmeistarar Fram ásamt vinum okkar ÍR-ingum.

Mótið fer fram í Íþróttahúsi Síðuskóla og verða leiknar tvær umferðir. Sú fyrri fer fram á föstudaginn og hefst klukkan 18:00 og verða leikirnir þá 2 x 20 mínútur. Seinni umferðin hefst klukkan 10:00 á laugardaginn en leikirnir í þeirri umferð verða í fullri lengd þ.e.a.s. 2 x 30 mínútur.

Það verður spennandi að sjá hvernig okkar mönnum gengur en þeir gerðu fína hluti í Reykjavíkurmótinu um síðustu helgi og verður fróðlegt fyrir handboltaunnendur að sjá til nýju mannanna í liðinu, Árna Sigtryggssonar og Jesper Sjøgren.

Þá eru einnig gamlir kunningjar okkar í hinum liðunum og má þar nefna Magnús Stefánsson, Halldór Jóhann Sigfússon og Guðmund Hermannsson með Fram og Ólaf Sigurgeirsson í liði ÍR.

Leikjaniðurröðunin er sem hér segir:
Föstudagur (2 x 20 mín)
18:00 - 19:30 ÍR – Fram
19:30 - 20:30 Akureyri - ÍR
21:00 - 22:00 Fram - Akureyri

Laugardagur (2 x 30 mín)
10:00 - 11:30 Akureyri - ÍR
12:00 - 13:30 ÍR - Fram
14:00 - 15:30 Fram – Akureyri
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson