 Jesper markvörður fékk lánaðan búning þjálfarans
| | 4. september 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarLíf og fjör á æfingum Akureyrar HandboltafélagsTíðindamaður heimasíðunnar fylgdist með æfingu Akureyrarliðsins í KA heimilinu í gær og var ekki annað að sjá en að hörkustemming væri í hópnum og menn klæjaði í lófana að fara að berjast í alvöruleikjum. Línumaðurinn, Atli Ævar Ingólfsson sem rifbrotnaði fyrir mánuði síðan tók þó ekki þátt í hasarnum en hann er allur að koma til og reiknar með því að hefja æfingar af krafti á mánudaginn.
Markverðirnir, Haffi og Jesper höfðu nóg að gera og í raun ekki öfundsverðir af hlutverki sínu enda áhersla á hraðaupphlaup og opin færi en þeir voru þó svo sannarlega vandanum vaxnir og tóku sína bolta með tilþrifum.
 Hafþór og Jesper voru sveittir eftir mikla keyrslu á æfingunni Línumennirnir fengu úr nógu að moða en þar dansa þeir góðkunnu félagar Hörður Fannar Sigþórsson (Höddi) og Þorvaldur Þorvaldsson (Valdi) af gamalkunnri list. Það er því ekki mikill fótur fyrir sögusögnum sem hafa gengið að undanförnu að þeir hafi lagt skóna á hilluna enda sýndu þeir alla sína bestu takta í gær.
 Valdi hvíldi sig lítillega eftir hamaganginn á línunni. Það er því full ástæða til að hvetja alla að mæta galvaska í Íþróttahús Síðuskóla og sjá strákana í leikjum helgarinnar á Greifamótinu. |