Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Leikmannahópur Akureyrar eflist stöðugt

5. september 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Straumurinn liggur til Akureyrar Handboltafélags

Í gær gengu tveir fyrrum leikmenn Akureyrarliðanna KA og Þór til liðs við Akureyri Handboltafélag. Þetta eru þeir Hreinn Þór Hauksson sem meðal annars varð Íslandsmeistari með KA árið 2002 og Brynjar Þór Hreinsson sem lék með Þór fram til 2002 en gekk þá til liðs við Gróttu/KR. Leiðir þeirra félaga lágu síðan saman þegar þeir léku saman með Fylki undir stjórn Sigurðar Sveinssonar allt þar til félagið hætti að halda úti liði.

Hreinn og Brynjar eru sem stendur búsettir í Reykjavík og verið er að fara yfir það hvernig kraftar þeirra munu nýtast liðinu en þetta gefur vissulega ýmiss tækifæri og meiri breidd í hópinn, sérstaklega varðandi útileiki liðsins.

Því miður höfum við ekki tiltækar myndir af þeim í augnablikinu en það stendur væntanlega til bóta.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson