 Matti trommari Háskólabandsins lék á alls oddi í Höllinni
| | 22. september 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarHáskólabandið hitaði upp fyrir fyrsta leikinn - myndirÍ vetur er ætlunin að bjóða upp á ýmiss konar uppákomur í tengslum við heimaleiki Akureyrar til að auka enn á skemmtunina sem fylgir því að mæta á leikina. Háskólabandið reið á vaðið og hélt uppi dúndrandi stemmingu á kaffiteríu Íþróttahallarinnar fyrir leikinn gegn FH. Hljómsveitin er skipuð starfsmönnum Háskólans á Akureyri með góðri tengingu við starfsmenn Verkmenntaskólans en Árni Jóhannsson, bassaleikari kemur þaðan. Hljómsveitin spilaði meðal annars nokkur lög af diski sínum, Vettvangur draumanna, sem kom út síðastliðið haust auk annarra stuðlaga. Áheyrendur gerðu góðan róm að þessu framtaki og nú er bara spurningin hvaða tónlistaratriði verður á næsta heimaleik sem verður gegn Stjörnunni fimmtudaginn 2. október næstkomandi?
Þórir Tryggvason hirðljósmyndarin okkar sendi nokkrar myndir af Háskólabandinu í aksjón og er hægt að skoða allar myndirnar með því að smella hér. |