Heimasíðan
 Fréttir  -   Úrslit  -   Næstu leikir  -   Deildin

    Fréttir                       Þú flettir milli frétta með örvalyklunum eða smellir á bláu örvarnar! 

Jónatan leikstjórnandi úrvalsliðsins

22. september 2008 - Akureyri handboltafélag skrifar

Jónatan og Akureyrskir áhorfendur í úrvalsliði 1. umferðar

Vefsíðan www.handbolti.is birti í dag val sitt á úrvalsliði 1. umferðar N1 deildar karla sem leikin var í síðustu viku. Fyrirliði Akureyrar, Jónatan Magnússon var valinn besti miðjumaðurinn og er hann vel að því kominn enda sýndi hann stórbrotinn leik á fimmtudaginn. Þá voru magnaðir stuðningsmenn Akureyrar liðsins valdir áhorfendur umferðarinnar, til hamingju allir með það.

Hér fer á eftir heildarlistinn yfir úrvalslið umferðarinnar.

Úrvalslið fyrstu umferðar í N1 deild karla að mati www.handbolti.is er eftirfarandi:
Markvörður: Birkir Ívar Guðmundsson, Haukar.
Vinstra horn: Baldvin Þorsteinsson, Valur.
Vinstri skytta: Ólafur Guðmundsson, FH.
Miðja: Jónatan Magnússon, Akureyri.
Hægri skytta: Rúnar Kárason, Fram.
Hægra horn: Elías Már Halldórsson, Haukar.
Lína: Kári Kristján Kristjánsson, Haukar.
Leikmaður umferðarinnar: Birkir Ívar Guðmundsson, Haukar.



Þjálfari: Elvar Erlingsson, FH.
Lið umferðarinnar: FH.
Áhorfendur umferðarinnar: Akureyri.
Besta umgjörð umferðarinnar: HK.

Sjá fréttina á www.handbolti.is.
Fletta milli frétta Til baka    Senda á Facebook

Efst á síðu

Umsjón og hönnun:
Stefán Jóhannsson og Ágúst Stefánsson