 Árni verður í góðum gír á fimmtudagskvöldið
| | 30. september 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarÁrni Þór Sigtryggsson besta hægri skytta 2. umferðarVefsíðan handbolti.is birti í gær val sitt á úrvalsliði 2. umferðar N1 deildarinnar. Akureyri á sinn fulltrúa í liðinu en Árni Þór Sigtryggsson var valinn besta hægri skyttan enda átti hann frábæran leik gegn Haukum á laugardaginn.
Þar sem Akureyri átti ekki heimaleik að þessu sinni höfðu frábærir áhorfendur okkar ekki tækifæri til að verja titil sinn sem bestu áhorfendurnir en þeir munu örugglega sýna það á fimmtudaginn hvers þeir eru megnugir.
Annars er úrvalslið umferðarinnar eins og hér má sjá:
Markvörður: Gísli Guðmundsson, Haukar. Vinstra horn: Brynjar Þór Hreggviðsson, HK. Vinstri skytta: Magnús Stefánsson, Fram. Miðja: Ólafur Sigurjónsson, Stjarnan. Hægri skytta: Árni Þór Sigtryggsson, Akureyri. Hægra horn: Einar Örn Jónsson, Haukar. Lína: Haraldur Þorvarðarson, Fram. Leikmaður umferðarinnar: Magnús Stefánsson, Fram. Þjálfari: Patrekur Jóhannesson, Stjarnan. Lið umferðarinnar: Stjarnan. Áhorfendur umferðarinnar: FH. Besta umgjörð umferðarinnar: Haukar.
Sjá fréttina á www.handbolti.is. |