 Það er óhætt að lofa frábærri skemmtun á fimmtudaginn
| | 30. september 2008 - Akureyri handboltafélag skrifarHeimaleikur á fimmtudaginn: Akureyri - StjarnanStjarnan úr Garðabæ verður andstæðingur okkar manna á fimmtudagskvöldið þegar 3. umferð N1-deildarinnar hefst. Þjálfarar og fyrirliðar spáðu Stjörnunni 5. sæti í deildinni og því má segja að Stjarnan hafi komið á óvart um síðustu helgi þegar þeir voru í raun óheppnir að missa unninn leik gegn Val niður í jafntefli á síðustu sekúndum leiksins. Fyrir vikið völdu spekingarnir á handbolti.is Stjörnuna lið 2. umferðar, Ólaf Sigurjónsson besta miðjumanninn og Patrek Jóhannesson þjálfara umferðarinnar.
Það er því öruggt mál að það verður hörkuleikur í Höllinni, Stjarnan ætlar örugglega að fylgja eftir góðum leik gegn Val og Akureyri ætlar sér pottþétt að taka sín fyrstu stig. Liðin mættust síðast í leik um 3. sætið í Reykjavíkurmótinu og þar fór Akureyri með sigur af hólmi.
Stjörnuliðið er nokkuð breytt frá því í fyrra en þeir misstu Heimi Örn Árnason, sem var valinn besti maður Íslandsmótsins í fyrra, þá er Hlynur Morthens markvörður farinn til Gróttu, Volodymyr Kysil er farinn erlendis og Patrekur er hættur að leika með liðinu en þjálfar í staðinn.
Af nýjum leikmönnum sem Stjarnan hefur fengið má nefna Ólaf Sigurjónsson úr ÍR, Fannar Þór Friðgeirsson frá Val, Fannar Örn Þorbjörnsson frá Danmörku og Hrafn Ingvarsson frá Aftureldingu. Það voru einmitt þeir Ólafur Sigurjónsson og Fannar Friðgeirsson sem voru atkvæðamestir í liðinu í síðasta leik með 8 og 6 mörk. Auk framantalinna hefur Stjarnan innanborðs frábæra leikmenn eins og markvörðinn, Roland Eradze, skyttuna Björgvin Þór Hólmgeirsson, hornamanninn Ragnar Má Helgason og Ólaf Víði Ólafsson sem reyndar hafa verið að glíma við meiðsli og því óljóst um þátttöku þeirra í næsta leik.
Leikmenn Akureyrar eru klárir í slaginn og lofa hörkuleik og ekki þarf að efast um að frábærir áhorfendur Akureyrar, bestu áhorfendur fyrstu umferðarinnar, mæta og sýna þjóðinni að þeir standa undir nafni með dúndurstemmingu í Höllinni. |